Margir eru uggandi yfir genginu á íslenskum verðbréfamörkuðum og eins gengi krónunnar. Krónan féll um nokkur prósent og fjöldi manns töldu að þetta væri endalok “góðærisins” sem hefur umlukið okkur Íslendinga síðustu ár. Hlutabréfin lækkuðu og ég er ekki frá því að þeir sem tilheyra vinstriflokkum voru farnir að brosa til að sýna að hægri blokkin sem hefur tekið fjármálaheiminn væri að falla eða hvað? Nú keppast bankarnir að slíta öll krossatengsl við sína fyrirtæki svo lánshæfismat þeirra verði ekki lækkað líkt og var gert hjá íslenskaríkinu. En hver er ábyrgur fyrir þessari lækkun á lánshæfismati? Eru það bankarnir eða ríkistjórnin?
Þótt ég hef ekki alltaf talað vel um íslensk hlutabréfafyrirtæki þá held ég að þeir séu á réttri leið miðað við ársreikninga hjá bönkum. Eins hjá stóru fyrirtækjunum eru lausafjárstaðan mjög góð og því ætti fyrirtækin frekar auðvelt með að “búa til” peninga á auðveldan átt ef um skammtíma sveiflu er að ræða. Núna horfir maður á ferkari útrás og hvernig þessi ágætu fyrirtæki eiga eftir að ganga á þeim grundvelli, ég tel að það séu 5-7ár þar til þau geti farið á þá markaði sem eru hvað arðbærastir í dag. Við horfum helst á Asíu og Indland sem gulrótarmarkaði enda eru þeir að opnast líkt og austur evrópa gerði og Íslandi fékk góða sneið af þeim.
En varðandi fjármálaheiminn hérna heima er ég hræddastur við íslenska ríkið? Að horfa á þessa háu vexti, lágt atvinnuleysi og mikla eyðslu íslenska ríkisins í framkvæmdir sé ástæður fyrir þessu titringi á markaðinum. Ég hef sagt að í september komi annar stærri skjálfti og því var gott að fá fyrirskjálfta til að koma fólki og fyrirtækjum undir súð því ég tel að gengi krónunnar getir fallið um allt að 8% á haustmánuðum þegar íslenska ríkið þurfi að greiða upp lán og getur það haft áhrif á gengið svo um munar. Kannski eiga þeir eftir að framlengja því eins og skilmálar gefi til kynna og tel ég það sniðugt gegnt því að stjórnvöld fari ekki í frekari virkjanir eða stórframkvæmdir fyrr en á hægist á vinnumarkaðnum og við náum að sameigna framboð og eftirspurn.
Posted at 10:43 am by stony
Permalink
3 bestu stjórnendur Íslands
Ég sat á viðskiptaþingi í Háskólanum í Reykjavík í gær. Þar var einn af fremstu viðskiptafræðingum og hvað einn af bestu stjórnendum fyrirtækja sem Ísland hefur alið. Róbert Wessman heitir hann og verð ég eftir að hafa heyrt í honum og rúllað aðeins yfir verk hans er hann afburðar stjórnandi. Þeir sem til þekkja vita að venjulega hefur hann alltaf sóst eftir starfi sem er mjög umdeilt. Til að mynda þegar hann byrjaði að starfa hjá Actavis var bankinn kominn með fingurnar á fyrirtækið og var allt að sigla í strand. 7 árum seinna er þetta 3 stærsta samheitalyfja fyrirtækið í heiminum með verksmiðjur í 32 löndum. Samt sér hann ástæðu til að halda höfuð stöðvunum hér á landi sem mér finnst aðdáenda vert því flestir myndu flytja út til að sýnast.
Björgólfur Thor er gott dæmi um mann sem ekki fer mikið um svona daglega, nema þegar hann fjárfestir. Dagfarsprúður og rólegur virðist ekki mikið fyrir glamúr lífið og það er eins og allt sé í öruggum höndum hjá honum. Við verðum ekki mikið var við hann hérna á Íslandi því hann er búsettur erlendis enda flestar fjárfestingar tengdar fjarskiptum og tækni. Hann er gott dæmi um afburðar fjárfestir.
Hreiðar Már er einn maður sem ég tel mann á réttum stað á réttum tíma. Ekki það að ég efist um hæfileika heldur er hann að stjórna stærsta banka sem er á Íslandi en það er eins og hann nái ekki að tækla þessa launa baráttu. Þó að hann gerir samning við fyrirtækið kemur það alltaf upp á yfirborðið og ekki tekst að ljúka þessu málum heldur þarf umræðan alltaf að endurtaka sig. Sjálfum finnst mér þetta gott mál enda eiga menn að fá borgað fyrir það sem þeir gera og sérstaklega þegar þeir gera það framúrskarandi en ég er alveg sammála um að allir í fyrirtækinu eiga að fá smá fyrir að vera andlit og hjálpa honum að ná árangri.
Posted at 03:18 am by stony
Permalink
Ég hef verið að lesa bókina hin mörgu andlit trúarbragðanna eftir Þórhall Heimisson og finnst hún ágæt. Þó svo að maður er ekki alltaf sammála því sem kemur fram er þetta til að útskýra og gefa mér sýn á trúarheima samtímans auk þess til að hvetja mig til að bera meiri virðingu fyrir þeim fjölmörgu trúarbrögðum sem eru í heiminum.
Ég byrjaði að skoða önnur trúarbrögð þegar ég fór til Taize árið 2000 með góðu fólki. þana hitti ég marga sem voru á sama plani og ég. Voru kaþólskir og fleirri gott fólk þarna í þessu klaustri og allt þetta var fólk frá því að vera trúlaust og upp í það að vera strangtrúaðir. Áttum við það sameiginlegt að vera þarna saman flestir kristnir á þann hátt að við trúðum á sama Guð og áttum allir svipaða sýn á Jesú. Þessi vika er örugglega sú vika sem hefur gefið mér hvað mest í svona mannlegum samskiptum því þarna lærði ég að við getum verið saman komin 5000 þúsund mans og átt samfélag án þess að upp komi ágreningur því fólk átti að bera virðingu fyrir hvort öðru.
Í skólanum núna í haust sat ég í áfanga sem heitir Alþjóðaviðskipti og var töluvert rætt um trúarbrögð þar enda skipta þau miklu máli í alþjóðasamfélaginu í dag. Jón Ormur sýndi okkur inn í viðskipta umhverfi ýmissa landa og hvernig við berum okkur að í viðskiptum í þessum minkandi heimi. Því grunnur hvers samfélags er trúarbrögð og við verðum að bera virðingu fyrir siðum, venjum og trú hvers lands!
Það er einn hópur sem sker sig úr hvað trúarbrögð varðar. Ég held að þessi trúarbrögð séu að upphefja van morrison, en annars veit ég ekkert um það, þetta er Vantrúin. Vantrúarmenn er hópur sem ég hef ekki, þó svo ég hef reynt eins og ég get að skilja en ekkert gengur. Afhverju má fólk ekki hafa sína trú? Ef við lifum í blekkingu því eru þeir að reyna að boða eitthvað annað þegar þeir segjast vera trúlausir? Mér líður alltaf eins og þeir fari að tala um kirkjuna og þeir sé að ráðast á saklausa borgara...en ef ég er bara saklaus borgari með mína trú og hef upplifað eitthvað í trúnni sem þeir geta með engu móti útskýrt, er þetta þá bara blekking hjá mér? Er vindurinn sem er úti bara blekking því ég sé hann ekki? En hann er þarna? Er það ekki? Eða er ég bara skrýtinn?
Posted at 02:51 pm by stony
Permalink